
Þetta
er höllin
Nýjasvanssiteinn
en þeir eru hér í miklu uppáhaldi
eins og í sumum ævintýrum.
Góðan daginn góðir hálsa til sjávar og sveita,
við fórum að skoða kastala hér í grend við heimili okkar hérna úti
í tilefni að afmæli mínu um daginn,
ég þakka kærar kveðjur að heiman (Hemmi).
Við byrjuðum daginn snemma að vanda og ókum yfir landamærin til Þýskalands að shloss-inu en það kalla þeir hallirnar sínar hér í landi germa og skoðuðum hvernig framtíðar heimkynnin eiga að líta út. Þegar að var komið Var boðið upp á að labba upp að kastalanum eða taka hestvagn og urðu þörfustu þjónarnir fyrir valinu enda 40mín. gangur upp að herlegheitunum. Innan kastalaveggjana var tekið á móti okkur og leiðbeinandi leiddi okkur um húsakynnin sem rúma 200 herbergi,tónlystarsal og hásætissalinn auk þjónusturýmis og að sjálfsögðu eldhús en aðeins hafðist hjá konungnum að láta klára 16 herbergi þar með talið stofur og ganga, á hverri hæð er saga að avintyri svo sem Íslendinga sögur úr Eddu, Tristan & Isold og Riddara hringborðsins. Þetta er hrein snild og af því sem var klárað var ekki kastað til hendinni, þangað förum við aftur því við komumst að því að það er hægt að fara í sér leiðandi ferð un leyniganga og leyndarmál Kastalans.
Í lok dagsin fórum við og slöppuðum af í Gufuparadís framm eftir kvöldi og þaðan fórum við hrein fersk og endurnærð brunandivið heim í alpaból.
(Hér að ofan er mynd af ltlum kastal með hobbidahurð(neðri mynd)).
Hér erum við á hestvagni Guðrún, Christina og maðurinn með tauminn.
Hermennirnir strunsa upp vantar ekki kappiðog hrystið í þessa Hermann.
Hér var áning og fengið sér morgunverðarhádegismat og kleinur á leiðinni til baka.
Hérna sést hvar óþekkar prinsessir voru geimdar þar til þeim óx nogu langt hár, þið þekkið söguna.
Á röltinu loka kaflan að hliði Kastalans áður en inn er komið.
Guðrún,Monika og Christina
Þarna glyttir í innganginn.
Þarna erum við komin innfyrir varnarmúrana
og næst efst gluggarnir eru svefnherbergi konungs og baðherbergi,
þar sem hann var klæddur í skrautið. Fyrir innan efstu gluggana er einn
stór salur upp í þak fyrir tónleka og skemtanir.
Guðrún og Christina í hallargarðinum eða forstofunni.
Og inn förum við en því miður máti ég ekki taka myndir innandyra nema út um gluggann, þessari náði ég samt og þetta er bara stigagangurinn (aðeins öðruvísi en í íbúðinni heima á klakanum).en hér fyrir neðan er vísir á síðu kastalans og þar er hægt að fara í skoðunnarferð.
Hérna sést hliðin sem snýr að héraðinu.
Þessi mynd er tekin frá stæðinu
og sést einnig glytta í þaran vinstramegin í kastalan á fyrstu myndinni,
það tók ekki nema 25mín. að rölta niður hlíðina að bílnum eftir ánægulegan dag.

Og að lokum er hér mynd af ævintýrakastalanm í Disneyworld.
svipur með þeim ekki satt.
Kveðja
HFG&GSM
Sæl!
SvaraEyðaÞetta lítur rosalega vel út hjá ykkur :) Íbúðin kósí og ferðirnar mjög spennandi. Frábært að geta fylgst með ykkur hérna.
Saknaðarkveðjur,
Guðrún og Einar