fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Góðan dag gott fólk !!!!! 
Héðan er allt gott að frétta við erum ný búinn í vetrarfrí sem var mjög fínt og skelltum við okkur til efra Austurríkis til Donju Vinkonu og fjölskyldunar hennar. 
Þar voru konuglegar mótökur og var rosa gaman við gerðum nú ekki mikið af okkur heldur nutum þess bara að vera til og geta farið í sturtu á nokkura vandræða :) 
Donja býr í litlum bæ og þar býr í raun öll móðurfjölskyldan hennar og rekur hún smíðaverkstæði sem Afi hennar stofnaði. Við fengum að fara í heimsókn þanngað og skoða hvernig aðstaðn er og hvernig þeir vinna þar. Jafn framt var okkur sýndur ofn sem er notaður til að þurka við  halda hita á verkstæðinu og einnig heldur hann sjö einbýlishúsum heitum með því að hita vatnið hjá þeim. 
Við kíktum í heimsókn tl ættingja Donju og voru flestir mjög áhugasamir um ísland og ástandið þar og hvernig allt væri í raun og veru. Á heimilinu hjá Donju eru 2 kettir og 1 hundur myndirnar hér að neðan eru úr göngutúr sem við fórum með mömmu Donju í og hundinum 


Húsið hennar Donju fyrir miðju
yfir landið í kring
Waltraud,Brösie og Guðrún
Mini Bambar
hmm hver eru þið 
besta skoða þetta
ekki sem verst þetta brauð
sátt, kanski smá sultu
ertu með meira 
mmmmm 
bara smá í viðbót


Geit sem býr þarna líka 
í sambýli við hest 
Guðrún,Waltraud og Brösie=munsla,borið fram Brúsi
Séð inni á milli trjánna 
Hús fjölskuyldunar sem ég var hjá fyrir 10 árum í 3 vikur
Donja að vinna á fullu

3 ummæli:

  1. gaman gaman hjá ykkur og til hamingju með daginn Guðrún kv Lambaselsbúar

    SvaraEyða
  2. Jæja, vonandi hefst þetta núna. Er búin að reyna að setja inn afmæliskveðju 3 í dag og ekkert gengið. Alla vega til lukku með afmælið Guðrún. Eigðu sem bestan dag :)

    SvaraEyða