Góðan daginn góðir hálsar!
Nú erum við búinn að vera í heilan mánuð í Austuríki og veðrið gott að vanda.
Núna um helgina var Hundasleðakeppni sem er árlegur viðburður hér í dalnum.
byrjað er að keppa í flokki þar sem tveir hundar draga sleðan og svo kemur næsti flokkur með fjóra svo sex, átta og að lokm tíu hunda, þá er nú kominn ágætis kraftur í keppnina.
Brautinn er um 20km löng hverjum sleða er startað stökum og það eru um 3 mínútur á milli starta.
ATH! myndirnar eru í kínverskri röð.
En gaman hjá ykkur fallegt veður og umhverfi svona svipað og hjá okkur um helgina og í dag það er sól og fullt af snjó en kanski ekki alveg eins mikið af trjam (o=
SvaraEyðaknús frá Reykásgenginu
Þetta er auðsjáanlega algjört ævintýri...rosa flottar myndir og fallegt og skemmtilegt umhverfi. Njótið íbotn og haldið endilega áfram að setja inn myndir og blogg :) Hemmi ég veit ég er 1/2 tíma of fljót að segja til hamingju með daginn....en til hamingju og eigðu sem bestan afmælisdag. Sjáumst svo eftir tæpan mánuð á Tene:)
SvaraEyða