föstudagur, 9. janúar 2009




jæja góðir hálsar það er nú svolítið síðan við létum í okkur heyra hérna en netið hefur aðeins verið að stríða okkur. Við erum sem sagt kominn til Tannheimer tal þar sem við erum með litla sæta íbúð og lítið ekki eins sætt baðherbergi. en frá því við skrifuðm síðast hefur þetta gerst, við komum tl Innsbruck það var rosa fínt að komast upp í rúm við vorum orðin frekar lúinn við eftir að hafa verið 15 tíma á ferðalagi. Við eyddum síðan deginum með Önju vinkonu og vorum að skoða okkur um Innsbruck. Á laugardgskvöldinu þá var ákveðið að fara í Rodel með Astrid, túristar gera það þannig að þeir eru keyriði upp á fjall með sleða upp í fjalla kofa og fara síðan t og renna sér niður (hljómar rosa vel) en þannig gerir heimafólk þetta ekki það keyrir að enda brautarinnar og síðan er bara arkað af stað með sleðan í eftir drægi. við léttum okkar ekki eftir liggja og lögðum í hann, hægt fórum við en þetta var samt upplifun og það að renna sér niður á sleðanum var geðveikt þreytta í fótum og hnjá og öðrum stöðum hvarf sem dögg fyrir sólu.  Sunnudagur 4 janúar. Við lögðum af stað um hádegi frá Astrid og vorum kominn til Zöblen tveimurtímum síðar. hér tók á móti okkur litl íbúðin sem við erum í hún er sætt á sinn sérstaka hátt. Á mánudag og þriðjudag þá erum við búinn að vera koma okkur fyrir kaupa það sem þarf að kaupa því ekki var allt til hérna sem þurfti. á miðvikudaginn fór ég og hitt skólatjóran og við fórum svo í hádegs mat með starfsmönnum skólans. það var voða gaman og þær eru allar mjög fínar. Nú er Fötudagur og við ætlum að skella okkur með öðrum skólanum að skoða loftbelgi því hér eru alltaf loftbelgja dagar í janúar. síðan ætlum við að skella okkur til Innsbruck á morgunn kíkja á Astrid og ná í síman sem við verðum með þar til við förum frá Austurríki. 


Eldhúsið okkar
Borðkrókurinn okkar
Stofan okkar

Við hjá gullna þakinu í Innsbruck

7 ummæli:

  1. Hæ hæ mikið er nú gott að allt hefur gengið vel,væri alveg til í að vera þarna með ykkur.
    veriði dugleg að blogga kær kv. Björk og co

    SvaraEyða
  2. Gaman að sjá myndir. Megið vera dugleg að setja þær inn :)

    SvaraEyða
  3. Gaman ad sja slotið !!
    vonandi gengur allt vel
    knús og kv mam h 17

    SvaraEyða
  4. Hæ þetta lítur vell út hjá ykkur,það er allt gott að frétta hjá okkur svona almennt,við Ívar erum að skifta umm sjálfskiftingu í Subaru,vorum búnir að gera allt klárt til að setj í, þá kom í ljós að ekki var hægt að snúa convente/oíudæla föst svo við bíðum eftir annari notaðri bara stuss,kv BGH.

    SvaraEyða
  5. Hæ hæ
    Já það er rétt hjá ykkur, íbúðin er sæt á sinn eigin hátt:) Ég er alveg viss um að ykkur eigi eftir að líða mjög vel þarna.
    Gangi þér vel í vinnunni og skemmtið ykkur vel inn á milli.
    Heyrumst, Guðný

    SvaraEyða
  6. Hæ hæ ferðalangar!
    Til hamingju með trúlofunina!! GÞH sagði mér fréttirnar í gær, átti víst að hafa fengið sms en Guðrún mín það var slökkt á símanum í nokkra daga þú veist hvernig ég er.
    Líst vel á þetta hjá ykkur, haldið áfram að hafa það gott og gaman hlakka til að lesa meira um ævintýri ykkar:-)
    Knús, Elín, Danni og Sigríður Ella

    SvaraEyða
  7. Jæja eftir smá námskeið fann ég út hvernig á að kommenta hjá ykkur. Hafið það sem allra best á nýja staðnum. Bið að heilsa öllum sem ég þekki þarna
    kv. Ásta

    SvaraEyða