fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Góðan dag gott fólk !!!!! 
Héðan er allt gott að frétta við erum ný búinn í vetrarfrí sem var mjög fínt og skelltum við okkur til efra Austurríkis til Donju Vinkonu og fjölskyldunar hennar. 
Þar voru konuglegar mótökur og var rosa gaman við gerðum nú ekki mikið af okkur heldur nutum þess bara að vera til og geta farið í sturtu á nokkura vandræða :) 
Donja býr í litlum bæ og þar býr í raun öll móðurfjölskyldan hennar og rekur hún smíðaverkstæði sem Afi hennar stofnaði. Við fengum að fara í heimsókn þanngað og skoða hvernig aðstaðn er og hvernig þeir vinna þar. Jafn framt var okkur sýndur ofn sem er notaður til að þurka við  halda hita á verkstæðinu og einnig heldur hann sjö einbýlishúsum heitum með því að hita vatnið hjá þeim. 
Við kíktum í heimsókn tl ættingja Donju og voru flestir mjög áhugasamir um ísland og ástandið þar og hvernig allt væri í raun og veru. Á heimilinu hjá Donju eru 2 kettir og 1 hundur myndirnar hér að neðan eru úr göngutúr sem við fórum með mömmu Donju í og hundinum 


Húsið hennar Donju fyrir miðju
yfir landið í kring
Waltraud,Brösie og Guðrún
Mini Bambar
hmm hver eru þið 
besta skoða þetta
ekki sem verst þetta brauð
sátt, kanski smá sultu
ertu með meira 
mmmmm 
bara smá í viðbót


Geit sem býr þarna líka 
í sambýli við hest 
Guðrún,Waltraud og Brösie=munsla,borið fram Brúsi
Séð inni á milli trjánna 
Hús fjölskuyldunar sem ég var hjá fyrir 10 árum í 3 vikur
Donja að vinna á fullu

miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Í Kastalaskoðun Schloss Neuschwanstein

Þetta 
er höllin
 Nýjasvanssiteinn 
en þeir eru hér í miklu uppáhaldi 
eins og í sumum ævintýrum.





Góðan daginn góðir hálsa til sjávar og sveita, 
við fórum að skoða kastala hér í grend við heimili okkar hérna úti
 í tilefni að afmæli mínu um daginn, 
ég þakka kærar kveðjur að heiman (Hemmi). 
Við byrjuðum daginn snemma að vanda og ókum yfir landamærin til Þýskalands að shloss-inu en það kalla þeir hallirnar sínar hér í  landi germa og skoðuðum hvernig framtíðar heimkynnin eiga að líta út. Þegar að var komið Var boðið upp á að labba upp að kastalanum eða taka hestvagn og urðu þörfustu þjónarnir fyrir valinu enda 40mín. gangur upp að herlegheitunum. Innan kastalaveggjana var tekið á móti okkur og leiðbeinandi leiddi okkur um húsakynnin sem rúma 200 herbergi,tónlystarsal og hásætissalinn auk þjónusturýmis og að sjálfsögðu eldhús en aðeins hafðist hjá konungnum að láta klára 16 herbergi þar með talið stofur og ganga, á hverri hæð er saga að avintyri svo sem Íslendinga sögur úr Eddu, Tristan & Isold og Riddara hringborðsins. Þetta er hrein snild og af því sem var klárað var ekki kastað til hendinni, þangað förum við aftur því við komumst að því að það er hægt að fara í sér leiðandi ferð un leyniganga og leyndarmál Kastalans.
 Í lok dagsin fórum við og slöppuðum af í Gufuparadís framm eftir kvöldi og þaðan fórum við hrein fersk og endurnærð brunandivið heim í alpaból.       

 (Hér að ofan er mynd af ltlum kastal með hobbidahurð(neðri mynd)).
Hér erum við á hestvagni Guðrún, Christina og maðurinn með tauminn.
Hermennirnir strunsa upp vantar ekki kappiðog hrystið  í þessa Hermann.
Hér var áning og fengið sér morgunverðarhádegismat og kleinur á leiðinni til baka.
Hérna sést hvar óþekkar prinsessir voru geimdar þar til þeim óx nogu langt hár, þið þekkið söguna.
Á röltinu loka kaflan að hliði Kastalans áður en inn er komið.
Guðrún,Monika og Christina
                Þarna glyttir í innganginn.
Þarna erum við komin innfyrir varnarmúrana 
og næst efst gluggarnir eru svefnherbergi konungs og baðherbergi,
 þar sem hann var klæddur í skrautið. Fyrir innan efstu gluggana er einn 
stór salur upp í þak fyrir tónleka og skemtanir.
Guðrún og Christina í hallargarðinum eða forstofunni.
Og inn förum við en því miður máti ég ekki taka myndir innandyra nema út um gluggann, þessari náði ég samt og þetta er bara stigagangurinn (aðeins öðruvísi en í íbúðinni heima á klakanum).en hér fyrir neðan er vísir á síðu kastalans og þar er hægt að fara í skoðunnarferð.
Hérna sést hliðin sem snýr að héraðinu.
Þessi mynd er tekin frá stæðinu 
og sést einnig glytta í þaran vinstramegin í kastalan á fyrstu myndinni,
 það tók ekki nema 25mín. að rölta niður hlíðina að bílnum eftir ánægulegan dag. 
Og að lokum er hér mynd af ævintýrakastalanm í Disneyworld.
svipur með þeim ekki satt.

Kveðja
HFG&GSM


sunnudagur, 1. febrúar 2009

Góðan daginn góðir hálsar!
Nú erum við búinn að vera í heilan mánuð í Austuríki og veðrið  gott að vanda.
Núna um helgina var Hundasleðakeppni sem er árlegur viðburður hér í dalnum.
byrjað er að keppa í flokki þar sem tveir hundar draga sleðan og svo kemur næsti flokkur með fjóra svo sex, átta og að lokm tíu hunda, þá er nú kominn ágætis kraftur í keppnina.
Brautinn er um 20km löng hverjum sleða er startað stökum og það eru um 3 mínútur á milli starta.

ATH! myndirnar eru í kínverskri röð.


      Í slökun eftir gott hlaup
einstakur stíll inní begjuna

         klukkan sett af stað

          tilbúinn í startið 3-2-1
                    Rásmarkið