þriðjudagur, 20. janúar 2009

sjáðu Madidd það snjóar

Hér hefur snjóað talsvert síðan í gær og vöknuðum við í morgunn og litum útum gluggan og þá leit þetta svona út. 
Annars er ekkert í gangi hjá okkur annað en að ég er að ná úr mér kvefinu og hálsbólgunni að öðruleiti er allt við það sama!!! 
kv GSM & HFG







laugardagur, 17. janúar 2009

síðan síðast


Góða kvöldið góðir hálsar!!! 
Af okkur er allt gott að frétta við fórum á skíði í gær og var þetta ekki einfaldasta skíða ferðin sem við höfum farið þar sem líkamlega formið er ekki á samastigi og viljin þannig að þetta var frekar erfitt. Við komumst niður og komum okkur heim. Sátt og glöð og ákváðum að skella okkur  í dag á gönguskíði. 
En plön breyttast og fengum við hringinu þess efnis að trúlofunarhringarnir sem við höfðum pantað væru komnir.  Sem Þýddi að við skelltum okkur í morgunn að sækja þá og erum himinlifandi með hringana okkar. Síðan kíktum við í Hofer (sem er Bónus hér) keyptum inn og komum okkur heim, við fórum ekki á gönguskíði þar sem ég (Guðrún) er kominn með hálsbólgu og get varla kyngt sem er nú frekar pirrandi en ég á frí á mánudaginn svo ég vona bara að þetta lagist hratt og örugglega. Hver veit ef maður er betri á morgunn þá fer maður kannski bara á gönguskíði. 
Annars eru myndir hér á eftir af honum Hemma mínu að sýna hversu stórt baðherbergið okkar er!!!!!! 
einnig eru myndir af bekkunum mínum í öðrum skólanum og svo eru myndir af okkur þar sem við erum að skoða loftbelgi því hér eru alltaf talsvert af loftbelgjum í janúar og eru þeir með sýningar. Það var tekið á móti okkur og krökkunum sýnt hvernig þetta virkar allt saman.


Hemmi kominn í Sturtu
svona þarf hann að þvo sér
Og svo skolar maður af sér og vonar að vatnið fari allstaðar
Hurðaropið inn á bað
Kominn með höfuðið upp í loft boginn og hálfur inn í sturtu :)
maður ákveður hvað skal gert áður en maður fer inn, blaðið er svipað stórt og séðogheirt.
Þröngt meiga sáttir.......
Loftbelgir á leið í loftin blá
flottasti belgurinn 38þús. cubik metrar og ber 4 manneskjur og eldsneyti.
Hér er ég og litli bekkurinn í kirkjuni í Tannheim.

föstudagur, 9. janúar 2009




jæja góðir hálsar það er nú svolítið síðan við létum í okkur heyra hérna en netið hefur aðeins verið að stríða okkur. Við erum sem sagt kominn til Tannheimer tal þar sem við erum með litla sæta íbúð og lítið ekki eins sætt baðherbergi. en frá því við skrifuðm síðast hefur þetta gerst, við komum tl Innsbruck það var rosa fínt að komast upp í rúm við vorum orðin frekar lúinn við eftir að hafa verið 15 tíma á ferðalagi. Við eyddum síðan deginum með Önju vinkonu og vorum að skoða okkur um Innsbruck. Á laugardgskvöldinu þá var ákveðið að fara í Rodel með Astrid, túristar gera það þannig að þeir eru keyriði upp á fjall með sleða upp í fjalla kofa og fara síðan t og renna sér niður (hljómar rosa vel) en þannig gerir heimafólk þetta ekki það keyrir að enda brautarinnar og síðan er bara arkað af stað með sleðan í eftir drægi. við léttum okkar ekki eftir liggja og lögðum í hann, hægt fórum við en þetta var samt upplifun og það að renna sér niður á sleðanum var geðveikt þreytta í fótum og hnjá og öðrum stöðum hvarf sem dögg fyrir sólu.  Sunnudagur 4 janúar. Við lögðum af stað um hádegi frá Astrid og vorum kominn til Zöblen tveimurtímum síðar. hér tók á móti okkur litl íbúðin sem við erum í hún er sætt á sinn sérstaka hátt. Á mánudag og þriðjudag þá erum við búinn að vera koma okkur fyrir kaupa það sem þarf að kaupa því ekki var allt til hérna sem þurfti. á miðvikudaginn fór ég og hitt skólatjóran og við fórum svo í hádegs mat með starfsmönnum skólans. það var voða gaman og þær eru allar mjög fínar. Nú er Fötudagur og við ætlum að skella okkur með öðrum skólanum að skoða loftbelgi því hér eru alltaf loftbelgja dagar í janúar. síðan ætlum við að skella okkur til Innsbruck á morgunn kíkja á Astrid og ná í síman sem við verðum með þar til við förum frá Austurríki. 


Eldhúsið okkar
Borðkrókurinn okkar
Stofan okkar

Við hjá gullna þakinu í Innsbruck

fimmtudagur, 1. janúar 2009

Nýársdagur



Hemmi Api á nýársdag og Guðrún Gírafi í nýársgöngu í dýragarðinum
Þóra, Vitor  og Guðrún við matarborðið á Gamlárskvöld



Við viljum byrja á að óska öllum nær og fjær gleðilegs nýss árs!!!!! við Hlökkum til að hitta ykur á nýu ári. 


Gamlárskvöld var mjög skemmtilegt og Borðuðum við Dýrindis mat sem hann Ágúst Þór eldaði af sinni allkunnu snilld. Rétt eftir miðnættið þá var horft á Dinner for one sem er hefð á mínu heimili á íslandi. allir fóru seint að sofa og  en þrátt fyrr það þá vöknuðum ég, Hemmi, Þóra og Viktor Daði um 9 og vorum kominn í dýragarðin í Odense um 11.  það var rosalega gaman!!!!

Síðan erum búinn að gera okkur ferðbúinn við ætlum að leggja í hann í fyrramálið og er ætlunin að fara snemma af stað svo við náum að keyra sem lengst í björtu.

Þangað til næst 
GSM & HFG